top of page

Ýmsir viðburðir í Kiðagili

Í Kiðagili eru haldnir fjölbreyttir og vandaðir viðburðir. Meðal annars má nefna víðfrægt kaffihlaðborð, ýmis konar tónleikar, markaðir og sýningar af ýmsu tagi.  Á sumrin eru listamenn hér í nágrenni við okkur sem setja upp myndlistarsýningar.

Fyrsta bílferðin yfir Sprengisand

Fyrsta bílferðin var farin yfir Sprengisand í ágúst 1933. Var þetta mikil ævintýraferð. Hægt er að skoða myndir og lesa frásagnir úr ferðinni á sýningunni í Kiðagili sem sett var upp árið 2003, þegar 70 ár voru liðin frá þessari ferð.

Kaffihlaðborð

Upplýsingar í síma 4643290

Kaffihlaðborðin okkar vinsælu eru orðin órjúfanlegur þáttur af sumrinu í Kiðagili og kemur fólk víðs vegar að til að gæða sér á ljúffengu heimabökuðu góðgæti.  

Útilegumenn í Ódáðahrauni

Sýningin Útilegumenn í Ódáðahrauni var opnuð 17. júní 2008. Hún gefur innsýn í líf íslenskra útilegumanna, sérstaklega í nágrenni Ódáðahrauns, með hliðsjón af þjóðsögum og munnmælasögum vítt og breitt um landið.

Sýningar 2018

Sigurborg frá Engihlíð er með myndlistarsýningu um þessar mundir.

bottom of page